Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi þann26.mars 2018 úr gildi framkvæmdaleyfi Hafnarfjarðarbæjar. Það er því óhjákvæmilegt að úrskurðurinn þýðir að frestun verður á framkvæmdum við línuna og á tengdum framkvæmdum.
Bygging Lyklafellslínu ( Sandskeiðslínu 1 ) er forsenda þess að hægt verði að fjarlægja Hamraneslínur og Ísallínur. Línan er á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar 2015-2024 og því samþykkt af Orkustofnun.
Undirbúningur að breytingum og uppbyggingu raforkukerfisins á Suðvesturlandi, allt frá Hellisheiði út á Reykjanes, hófst árið 2005 í samráði við viðkomandi sveitarfélög. Unnið var mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna í heild og lá álit Skipulagsstofnunar fyrir í september 2009.
Framkvæmdin er í samræmi við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Samráðsfundir eru haldnir reglulega með hagsmunaaðilum þar sem farið er yfir stöðu verkefnisins á hverjum tíma.
Frá upphafi var gert ráð fyrir að framkvæmdunum yrði skipt í áfanga og hefur nú verið hafist handa við þann áfanga verkefnisins sem felst í byggingu Sandskeiðslínu 1, um 27 km langrar 220 kV raflínu frá Lyklafelli að Hamranesi. Samhliða er unnið að byggingu sex rofareita tengivirkis sem draga mun úr vægi tengivirkisins á Geithálsi og byggingu Ísallínu 3, um þriggja km 220 kV raflínu frá tengivirki við Hamranes að álverinu í Straumsvík. Á móti verða fjarlægðar Hamraneslína 1 og 2, sem liggja frá Geithálsi um Heiðmörk að Hamranesi, og Ísallína 1 og 2, frá tengivirki við Hamranes að álverinu.
Áætlað að framkvæmdir við Lyklafellslínu 1, tengivirkið og Ísallínu 3 hefjist um mitt ár 2017, að því gefnu að tilskilin leyfi fáist í tæka tíð, og ljúki fyrir árslok 2018.